29.11.1950
Sameinað þing: 19. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 347 í D-deild Alþingistíðinda. (4365)

903. mál, dýpkunarskipið Grettir

Fyrirspyrjandi (Gísli Jónsson) :

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir greinileg svör í sambandi við þetta mál. Ég sé, að þáltill., sem ég flutti um þetta mál á síðasta þingi, hefur haft sín áhrif til þess, að farið hefur verið nánar inn á sparnaðarleiðir í þessu máli, og sá árangur orðið af, sem hæstv. ráðh. hefur lýst. Og ber að þakka þá viðleitni öllum þeim aðilum, sem að því hafa starfað.