13.12.1950
Sameinað þing: 25. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 357 í D-deild Alþingistíðinda. (4397)

129. mál, störf Grænlandsnefndar

Fyrirspyrjandi (Pétur Ottesen):

Það eru liðin 2 ár og rúmlega það, síðan dómsmrh. skipaði svo nefnda Grænlandsnefnd, sem skyldi athuga réttarstöðu Íslands til Grænlands. Nú vildi ég spyrja, hvað liði störfum þessarar nefndar og hvort ekki mætti vænta þess, að hún lyki störfum innan skamms, svo að hægt sé að gera nauðsynlegar ráðstafanir í þessu máli.