07.02.1951
Sameinað þing: 39. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 361 í D-deild Alþingistíðinda. (4406)

162. mál, fiskideild hlutatryggingasjóðs bátaútvegsins

Fyrirspyrjandi (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Ég vil leyfa mér að þakka hæstv. ráðh. fyrir skýr svör í sambandi við þessar fyrirspurnir. En hins vegar vil ég lýsa vonbrigðum okkar yfir því, hvað lengi hefur dregizt að setja þessa reglugerð. Við væntum þess, að sú áætlun, sem kemur fram í bréfi því, sem hæstv. atvmrh. las upp, verði tilbúin í næsta mánuði, og munum við sætta okkur við það. Varðandi svar við 2. lið, þá má hins vegar viðurkenna, að það er kannske eðlilegt, að það liggi varla fyrir neinar upplýsingar, þar sem það er kunnugt, hvað skilagreinar berast stundum seint frá umboðsmönnum hins opinbera.