19.12.1950
Sameinað þing: 28. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1561 í B-deild Alþingistíðinda. (458)

Þinghlé

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Ég vil leyfa mér fyrir hönd alþm. — og ég veit, að ég tala þar fyrir hönd þeirra allra — að þakka hæstv. forseta fyrir góðar jóla- og nýársóskir í okkar garð og vil leyfa mér að óska honum góðra jóla og gleðilegs nýárs og óska honum góðrar heimferðar og heimkomu og að við megum sjá hann heilan aftur, þegar fríi er lokið, og þakka honum góða samvinnu, það sem af er þessu þingi. Bið ég hv. þm. að taka undir þessar óskir mínar til hæstv. forseta með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.]