06.03.1951
Efri deild: 86. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1563 í B-deild Alþingistíðinda. (468)

Starfslok deilda

forseti (BSt) :

Ég geri ráð fyrir, að þetta verði síðasti fundur þessarar deildar á þessu þingi. Bið ég um umboð deildarinnar til að ganga ásamt skrifurum frá tveimur síðustu fundargerðum. Skoða ég það samþ., ef enginn mælir því í gegn.

Hv. alþingismenn Ed. Ég vil nota tækifærið til að þakka samveruna á því þingi, sem er að ljúka. Enn fremur þakka ég starfsmönnum deildarinnar, varaforsetunum, sem tvisvar hafa hlaupið í skarðið í veikindaforföllum mínum og skrifurum deildarinnar, fyrir ágæta aðstoð. Óska ég þeim þm., sem eiga heima utan Reykjavíkur, góðrar heimfarar og góðrar heimkomu. Öllum þm. óska ég góðrar framtíðar, árs og friðar.