06.03.1951
Efri deild: 86. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1563 í B-deild Alþingistíðinda. (469)

Starfslok deilda

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Ég vil leyfa mér fyrir hönd alþingismanna að þakka forseta árnaðaróskirnar. Leyfi ég mér að óska, að hann verði heill og hraustur, þar til við sjáum hann aftur, og að hann og kona hans fái góða heimferð. Vil ég sérstaklega þakka honum réttláta, góða og prúða framkomu í forsetastóli. Vil ég að lokum biðja hv. þm. að standa upp og votta forseta þakklæti fyrir hans störf. — [Deildarmenn risu úr sætum.]