13.12.1950
Efri deild: 37. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 135 í B-deild Alþingistíðinda. (537)
124. mál, lífeyrissjóður barnakennara
Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson):
Herra forseti. Það er alveg sama að segja um þetta frv. og frv. það, sem ég var að ræða hér um áðan. Ég get því alveg sleppt frekari málalengingum og lýst því yfir, eins og nál. ber með sér, að n. hefur komið sér saman um að leggja til, að frv. verði samþ. óbreytt.