07.11.1950
Neðri deild: 17. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1551 í B-deild Alþingistíðinda. (62)

Varamaður tekur þingsæti

forseti (SB) :

Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf frá hv. 10. landsk., Jónasi Árnasyni, dags. 6. þ. m.:

„Með því að ég er á förum til útlanda og verð fjarverandi 2–3 vikur, leyfi ég mér að óska þess, með skírskotun til 144. gr. l. nr. 80 1942, um kosningar til Alþingis, að varamaður, Magnús Kjartansson ritstjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Kjörbréf Magnúsar Kjartanssonar hefur verið athugað áður, og tekur hann nú um stundarsakir sæti hv. 10. landsk. þm.