27.10.1950
Efri deild: 10. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 161 í B-deild Alþingistíðinda. (653)
5. mál, tollskrá o.fl.
Frsm. minni hl. (Brynjólfur Bjarnason):
Herra forseti. Ég ætla alls ekki að fara að hefja hér almennar umr. við hv. frsm., enda hefur hann ekki gefið neitt tilefni til þess. En ég vil aðeins, út af því, sem hann sagði, segja þetta: Það er ekki fyrst og fremst vegna þess, að hlaðizt hafi mikil útgjöld á ríkissjóðinn til nytjamála, að nauðsynlegt hafi verið að leggja þessar tollaálögur á. 1946, í lok þess tímabils, sem nýsköpunarstjórnin fór með völd, þá stóð ríkissjóður undir þeim útgjöldum, sem samþ. voru þá til nytjamála. Þá var engin nauðsyn til þess að leggja á þessa tolla, sem hér er um að ræða. En það er annað, sem orðið hefur síðan, ekki aðeins það að geysilega hafa aukizt ríkisútgjöldin, og það ekki til nytjamála, — kostnaður við ríkisbáknið hefur aukizt stórkostlega, um 20 millj. kr. eftir upplýsingum hv. form. fjvn. Hitt er aðalatriðið, að síðan 1948 hefur útflutningur landsmanna lækkað um 240 millj. kr., eða um meira en þriðjung, samkv. upplýsingum hæstv. viðskmrh. Reyndar er nú, rétt talið, lækkunin enn þá meiri. Og það er þetta, sem er afleiðing af þeirri stjórnarstefnu, sem rekin hefur verið á undanförnum árum hér hjá okkur. Og það er þetta, sem ég átti við, er ég sagði, að þetta mál væri ekki hægt að greina frá allri stefnu ríkisstj. undanfarið yfirleitt. En ég ætla ekki út í almennar umr. um þetta hér.
Hvað snertir umr. um nýja tekjustofna, þá mundi ég, ef nauðsynlegt væri þrátt fyrir allt að auka tekjustofna ríkisins, sízt af öllu leggja til, að þessi leið yrði farin. Það er náttúrlega fjöldamargt annað, sem til greina kemur í því efni, heldur en þetta, og ég mundi fyrr vera með. T.d. vorum við nýlega að samþ. framlengingu á gjaldi af innlendum tollvörutegundum. Það væri hægt fyrir ríkið að verzla með þessar tollvörur og nýta þann gróða, sem er mjög mikill. Sama er að segja um fjöldamargar svartamarkaðsvörur, sem gæti verið stórgróði fyrir ríkið að verzla með. Gæti ég nefnt fjölda af vörum, sem fyrr kæmi til greina í þessu sambandi að taka gróða af verzlun með til tekna fyrir ríkið, að mínu áliti, heldur en með þessu, sem hér er um að ræða. Er hér um að ræða gagngeran skoðanamun milli stuðningsmanna hæstv. ríkisstj. annars vegar og mín og minna flokksmanna hins vegar.