13.12.1950
Neðri deild: 38. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 179 í B-deild Alþingistíðinda. (699)

105. mál, friðun arnar og vals

Bjarni Ásgeirsson:

Herra forseti. Það er líklega í samræmi við ófriðun rjúpunnar að friða valinn. En ég hef sannfrétt, að honum fjölgi ört og sé orðinn hinn mesti vágestur sums staðar. Ég veit ekki, hvort það á að sanna sveiflukenninguna með því að láta hann glíma við rjúpuna, en ég mun við 3. umr. bera fram brtt. við frv.