13.12.1950
Efri deild: 38. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 189 í B-deild Alþingistíðinda. (738)
9. mál, tekjuskattsviðauki, lækkun skatts af lágtekjum o.fl.
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Ég hefði helzt óskað, að hæstv. forseti gerði ráðstafanir til, að hæstv. fjmrh. væri hér viðstaddur. Hann hélt fram, að ég hefði misskilið málið. Ég vildi þá kenna honum að lesa l. (Forseti: Ég veit ekki, hvernig ætti að fara að tryggja það.) Hæstv. forseti veit vel, hvernig á að ná mönnum hingað á fund. En ef ekki er unnt að fá hæstv. ráðh. hingað nú, vildi ég óska þess, að hæstv. forseti frestaði málinu, þar til hæstv. ráðh. hefur tíma til að ræða þetta mál við mig, og vil ég biðja hæstv. forseta um það. Þetta er ekki heldur neitt smámál, að því er mér skilst á hæstv. ráðh. Hér er ýmislegt annað að ræða, sem við getum skemmt okkur við, þangað til hæstv. fjmrh. hefur tíma til að ræða við okkur.