07.12.1950
Sameinað þing: 24. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 335 í B-deild Alþingistíðinda. (815)

1. mál, fjárlög 1951

Atvmrh. (Ólafur Thors):

Mál bátaútvegsins eru í rannsókn og athugun hjá ríkisstj., og þar til þeirri athugun er lokið, tel ég ótímabært að greiða atkv. með till. sem þessari og segi því nei.