14.12.1950
Sameinað þing: 26. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 338 í B-deild Alþingistíðinda. (826)

1. mál, fjárlög 1951

Forseti (JPálm):

Nei, það er ætlunin að afgreiða lögin nú fyrir árslok og taka eldhúsdagsumræðurnar á dagskrá þannig, að það séu almennar umræður í sambandi við afgreiðslu fjárlaganna.