16.12.1950
Sameinað þing: 27. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 397 í B-deild Alþingistíðinda. (892)

1. mál, fjárlög 1951

Gísli Jónsson:

Fyrir n. lágu upplýsingar frá forstjóra innkaupastofnunar ríkisins um, að hægt væri að fá ódýrari olíu en nú er yfirleitt. Í trausti þess, að hæstv. ríkisstj. láti athuga þetta og lækki verðið, segi ég nei.