18.12.1951
Neðri deild: 47. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 755 í B-deild Alþingistíðinda. (1021)
21. mál, ríkisborgararéttur
Jóhann Hafstein:
Það eru bara örfá orð út af brtt. á þskj. 473, sem við hv. 3. landsk. flytjum. Hv. frsm. allshn. hefur gert grein fyrir 1. og 3. tölul. brtt., en það stendur þannig á um þá menn báða, að þeir voru á stjfrv., sem var lagt fyrir d., og plögg þeirra öll í bezta lagi, þeir uppfylla öll önnur skilyrði en það að hafa verið hér búsettir í 10 ár samfleytt. Við ræddum þetta í n., en niðurstaðan varð sú, að hún vildi ekki fara út fyrir ramma ríkisborgararéttarl. um þessa meginreglu. Hv. 3. landsk. talaði þá um það við mig, að við flyttum sérstaka till. um þessa menn, og þar sem þeir höfðu einnig verið á frv. ríkisstj., fannst mér ástæða til að verða við því, því að með þessu móti er hægt fyrir d. að skera úr því, hvort hún vill fylgja í því efni því, sem n. hefur lagt til, eða leyfa sér að fara í einstökum tilfellum út fyrir þann ramma, sem hún auðvitað hefur rétt til, ef hún óskar eða vill. Og það eru að sjálfsögðu nokkur meðmæli með því, að orðið verði við óskum þessara manna, að þeir voru á því frv., sem ríkisstj. upphaflega lagði fyrir d. varðandi veitingu ríkisborgararéttar.
Um 2. tölul. á þessu þskj., Norðmanninn, stendur nokkuð öðruvísi á en um hina, og vil ég bæta nokkrum frekari upplýsingum við að því er hann snertir. Hann er nú búinn að vera hér samfleytt í 10 ár, en hins vegar hófst vera hans hér sem hermanns í norska hernum á stríðsárunum, og var hann þá búsettur á Seyðisfirði sem norskur hermaður og giftist þar íslenzkri konu og eignaðist með henni 4 börn. Hann hefur svo dvalizt hér síðan og er sjómaður á íslenzkum togara. Eins og nú er komið högum þeirra hjóna, með þessi 4 börn, mun það vera ásetningur þeirra að halda áfram búsetu heima á Íslandi, og verða menn þá að gera upp við sig, hvort þetta atriði skuli verða honum að fótakefli, að hann að vísu fyrstu árin dvaldist hér sem norskur hermaður á stríðsárunum, en með þeirri dvöl og dvölinni eftir stríðið er dvöl hans hér orðin 10 ár. — Það er rétt, að þetta er utan við hinn formlega ramma að skilningi l., en eins og hv. frsm. gerði grein fyrir, höfum við í sambandi við einn mann í till. n. ekki bundið okkur algerlega við það ákvæði l., við viðkomandi skyldi hafa átt óslitið heimilisfang hér, áður en ríkisborgararéttur væri veittur. Og hið sama gildir um annan þeirra manna, sem hv. þm. N-Ísf. leggur til að fái ríkisborgararétt, og mælir hv. n. með, að það verði samþ. Finnst mér þá svo mjótt á mununum þarna, að hv. þdm. ættu ekki að taka nærri sér að veita þessum aðila ríkisborgararétt eins og hinum, sem þó hefur dvalizt hér öll árin samfleytt.