13.11.1951
Efri deild: 28. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 43 í B-deild Alþingistíðinda. (106)

30. mál, innflutningur á hvalveiðiskipum

Frsm. (Vilhjálmur Hjálmarsson):

Herra forseti. Þetta frv. er lagt fram til staðfestingar á brbl., sem sett voru í vor, 24. maí.

Sjútvn. hefur haft þetta mál til meðferðar, og þar sem hún getur fyrir sitt leyti fallizt á þau rök, sem lágu til grundvallar brbl., leggur hún til, að frv. verði samþykkt.

Ég vil aðeins geta þess, að einn nefndarmaður, hv. 6. landsk. þm., var ekki viðstaddur, svo að hann hefur ekki skrifað undir nál.