29.11.1951
Efri deild: 36. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 779 í B-deild Alþingistíðinda. (1099)

38. mál, hámark húsaleigu o. fl.

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Ég sé, að hér er á ferðinni sams konar mál og hefur verið útbýtt í Nd. og flutt þar af allshn. Hins vegar hafa þessi mál jafnan verið athuguð í heilbr.- og félmn., enda borin fram af hæstv. félmrh. — Ég vil bara benda á, að ef þessi mál eiga að afgreiðast saman, þá er eðlilegast, að frv. fari til hv. allshn. Ég vildi aðeins benda á þetta.