13.12.1951
Neðri deild: 42. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 781 í B-deild Alþingistíðinda. (1108)

38. mál, hámark húsaleigu o. fl.

Jörundur Brynjólfsson:

Herra forseti. Ég sé, að mál þetta hefur tekið nokkurri breyt. í Ed. N. sú, er fjallaði um það hér í þessari d., hefur ekki átt þess kost að athuga málið þannig breytt. Ég vil því leyfa mér að fara fram á það við hæstv. forseta, að málinu verði frestað, þangað til n. hefur átt þess kost að athuga það svo breytt.