22.01.1952
Neðri deild: 68. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 784 í B-deild Alþingistíðinda. (1127)

38. mál, hámark húsaleigu o. fl.

Jörundur Brynjólfsson:

Allshn. hefur haft mál þetta til athugunar, og skiptar skoðanir innan n. um það, hvort bæri að breyta frv. í hið upphaflega horf. En niðurstaðan hjá meiri hl. n. varð nú að leggja ekki til, að gerð yrði breyt. á frv., úr því sem nú er komið, — hrekja það ekki á milli deilda.