16.01.1952
Sameinað þing: 32. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 791 í B-deild Alþingistíðinda. (1133)
169. mál, fjáraukalög 1949
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðh. fyrir þessa formsbreyt. En ég vil spyrja hæstv. ráðh., hvort hann ætlist til þess, að þetta frv. verði afgreitt áður en þessu þingi verður slitið, og á hve löngum tíma hann ætli fjvn. að ræða þetta mál.
Hér er um að ræða frv. til fjáraukal. fyrir árið 1949, að upphæð um 60 millj. kr. Ég sé ekki annað en að fjvn. verði að afgreiða þetta mál blindandi. Ég minnist þess, að á hverju ári síðan ég kom í fjvn., eða frá 1945, þá hefur n. setið með sveittan skallann 4–6 tíma á dag til að meta þau gögn, sem fram hafa komið, og kalla til sín forstjóra ýmissa fyrirtækja og ræða við þá og gera samninga við þá og ríkisstj. um að halda gjöldunum innan þeirra takmarka, sem áætlað er. Og hvenær sem ætlað er að koma fram nýrri breyt., þá þarf það að ganga ekki aðelns fyrir fjvn., heldur ríkisstj. og Alþingi. En hér á að afgreiða á nokkrum dögum 60 millj. kr. frv. til fjáraukal., nema einhver önnur gögn liggi fyrir. En þá veit ég ekki, hvers vegna verið er að vísa þessu máli til n.
Ég vil benda á, að nýlega er búið að útbýta ríkisreikningnum 1949, en nú er farið að vísa til Alþingis ýmsum umframgreiðslum og athugasemdum, sem komið hafa fram við endurskoðunina. Ég vil benda á, að í sambandi við það eru gerðar mjög róttækar athugasemdir, t.d. við útvarpið, þar sem þar er eytt, eins og þetta frv. sýnir, yfir 1200 þús. kr. fram yfir áætlun og yfir 400 þús. kr. í útvarpsefni án nokkurrar heimildar frá Alþingi eða fjvn. Og ef hugmyndin er að samþ. þetta frv. eins og það liggur hér fyrir, þá er það hrein syndakvittun ekki aðeins fyrir ríkisstj., heldur þá menn, sem stjórna þessari stofnun. Og hvers vegna er verið að leggja alla þessa vinnu í þessi mái á þinginu og kalla þessa menn fyrir sig, ef síðan, þegar þeir eru farnir út úr herbergjunum, þá mega þeir haga sér eins og þeim sýnist?
Ég vildi því spyrja hæstv. ráðh., hvort ætlazt sé til þess, að þetta mál afgreiðist nú. Ég mun ekki sjá mér fært að afgreiða málið, nema sams konar gögn séu send til n. eins og send eru til athugunar við fjárlagafrv. árlega. Ég óska, að þau gögn komi áður en n. gengur frá málinu.