23.01.1952
Sameinað þing: 35. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 795 í B-deild Alþingistíðinda. (1142)

169. mál, fjáraukalög 1949

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Eins og kunnugt er, eru það starfsmenn fjmrn., sem semja þessi fjáraukalög, og koma gögnin ákaflega seint í þeirra hendur, svo að þeir verða að hraða sér mikið. Af þessum ástæðum er frv. ekki eins vel borið saman sem skyldi, og er sjálfsagt að athuga það framvegis.