19.01.1952
Neðri deild: 64. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 803 í B-deild Alþingistíðinda. (1166)

167. mál, fasteignaskattar til sveitarsjóða

Forseti (SB):

Mér hefur borizt skrifl. brtt. við 1. gr. frá hv. 2. þm. Reykv., um að í stað orðsins „sveitarstjórnir“ í 1. gr. komi: bæjarstjórn Akureyrar, — og að fyrirsögn frv. breytist í samræmi við það.

Brtt. er skrifl. og of seint fram komin og þarf því tvöföld afbrigði, til þess að hún megi koma hér til umr.