22.01.1952
Efri deild: 68. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 815 í B-deild Alþingistíðinda. (1194)

167. mál, fasteignaskattar til sveitarsjóða

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Við erum nú farnir að nálgast það mál, sem er til umræðu. Í sambandi við það, sem hv. 1. þm. N–M. sagði, vil ég segja það, að það væri nokkuð til í því, sem hv. þm. sagði, ef samvinnufélögin væru einu fyrirtækin, sem greiddu fasteignaskatt, en það eru nú fleiri fyrirtæki, sem gera það.