11.12.1951
Efri deild: 41. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 909 í B-deild Alþingistíðinda. (1358)

142. mál, stofnlánadeild sjávarútvegsins

Atvmrh. (Ólafur Thors):

Herra forseti. Ég sagði það, sem ég taldi þurfa að segja um þetta mál, við umræður um 6. dagskrármálið, um fiskveiðasjóð, og get ég vísað í öllu til þess. — Ég leyfi mér að leggja til, að þessu máli verði að lokinni umr. vísað til sjútvn. og 2. umr. og að það fái svo fljóta og góða afgreiðslu sem unnt er.