10.12.1951
Efri deild: 40. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 958 í B-deild Alþingistíðinda. (1483)

83. mál, Iðnaðarbanki Íslands hf

Jóhann Jósefsson:

Herra forseti. Ég vil þakka forseta fyrir svörin. Hins vegar er mér ekki kunnugt um neitt samkomulag varðandi afgreiðslu bessa máls, sem er frv. til l. um stofnun Iðnaðarbanka Íslands. Ég er frsm. iðnn. í þessu máli, og hefur mér eigi verið kunnugt um, að draga eigi þetta mál úr hömlu fram, en ég vil endurnýja tilmæli mín til hæstv. forseta, að hann taki málíð á dagskrá næsta fundar.