13.12.1951
Efri deild: 42. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 981 í B-deild Alþingistíðinda. (1500)

83. mál, Iðnaðarbanki Íslands hf

Forseti (BSt):

Mér hafa borizt svofelldar skriflegar brtt. frá hv. 4. þm. Reykv. (HG): „1. og 2. málsl. 3. gr. frv. orðist svo: Hlutafé félagsins skal nema allt að 71/2 millj. kr. Ríkissjóður skal leggja fram 4 millj. kr.“ Og brtt. við brtt. á þskj. 357. „Annar málsl. brtt. orðist svo: Ríkissjóður skal leggja fram 6 millj. kr.“

Þessar brtt. eru of seint fram komnar og auk þess skriflegar og þurfa því tvöföld afbrigði.