19.12.1951
Efri deild: 50. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 994 í B-deild Alþingistíðinda. (1525)

83. mál, Iðnaðarbanki Íslands hf

Jóhann Jósefsson:

Herra forseti. Með því að þessi brtt., ef samþ. yrði, miðaði að því að taka Yfirráðin yfir væntanlegum banka úr höndum Félags íslenzkra iðnrekenda og Iðnaðarmannasambandsins, segi ég nei.

Brtt. 507 felld með 8:3 atkv.

— 508 felld með 6:4 atkv.

Frv. samþ. með 8:3 atkv., að viðhöfðu nafnakalli, og sögðu

já: JJós, SÓÓ, StgrA, BBen, BrB, FRV, GJ, HG.

nei: PZ, ÞÞ, BSt.

HermJ, KK, LJóh, RÞ, VH, HV greiddu ekki atkv.

1 þm. gerði grein fyrir atkv.: