17.12.1951
Efri deild: 45. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1005 í B-deild Alþingistíðinda. (1553)
145. mál, vegalög
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Ég skal ekki fara að blanda mér í þetta mál, en ég vil aðeins segja það, að ef þessar till. verða teknar aftur nú, þá mun ég taka þær upp aftur óbreyttar, því að það er óverjandi að láta þær niður falla nú, eins og málið er undirbúið, en þar hefur nefndin komið sér saman um, hvaða vegir skuli komast inn og hvaða ekki. En ef á að fresta svo mörgum till. til 3. umr., verður það bindandi um of. Ég sé mér ekki annað fært en að flytja brtt. um vegi í Barðastrandarsýslu, ef þessar till. verða samþ., en ég mun ekki gera það, ef þessar till. verða felldar við 2. umr. Þess vegna óska ég eftir því, að þessar till. verði látnar ganga til atkv. nú. — Hitt skiptir miklu meira máli en flesta grunar, hvert orðalag er haft á Arnarfjarðarveginum, og hallast ég mest að þeirri stefnu að taka hann að Þingmannaheiði að Botni og á Rafnseyrarveg og að Borg út með byggðinni. — Ég mun þess vegna ekki geta greitt atkv. með þessum till.