20.12.1951
Efri deild: 51. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1017 í B-deild Alþingistíðinda. (1612)

153. mál, skemmtanaskattur og þjóðleikhús o.fl.

Þorsteinn Þorsteinsson:

Sem form. menntmn. vil ég lýsa því yfir, að við höfum átt tal saman í menntmn. um þetta mál, og mér er kunnugt um, að fjórir nm. munu leggja mikla áherzlu á, að það verði samþ. óbreytt, og fimmti nm. mun ekki greiða atkv. gegn því. — Það liggur ekki fyrir beiðni um, að þetta mál fari til n., enda er málið flutt af menntmn. Nd., og óska ég því ekki eftir, að það fari til nefndar.