07.11.1951
Efri deild: 26. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1028 í B-deild Alþingistíðinda. (1651)

37. mál, heimilishjálp í viðlögum

Frsm. (Gísli Jónsson):

Herra forseti. Ég vil benda á, að n. hefur lagt til, að orðið „óviðráðanlegum“ í síðari málsl. 1. gr. falli niður. Ég hef rætt þetta við hv. flm. frv., sem hefur orðið samþykk þessari breytingu. Ég leyfi mér því að afhenda forseta þessa skriflegu brtt. við 1. gr. frv.