18.01.1952
Neðri deild: 61. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1053 í B-deild Alþingistíðinda. (1762)

84. mál, happdrætti íþrótta- og ungmennafélaga

Frsm. (Áki Jakobsson):

Herra forseti. Þessu máli var frestað eftir beiðni hæstv. forsrh., sem borið hefur fram bréf frá landlækni um þetta efni, og sé ég ekki ástæðu til að ræða það á þessu stigi. En nefndin leggur til, að þetta frv. verði samþ. óbreytt eins og það liggur fyrir.