11.12.1951
Neðri deild: 41. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1117 í B-deild Alþingistíðinda. (1883)

96. mál, menntaskólar

Forseti (SB):

Ég vil aðeins benda á, út af ósk hv. frsm. meiri hl. menntmn., að umr. um þetta mál var frestað í gærkvöld vegna þess, að ósk kom fram um, að menntmn. gæti fengið tíma til að athuga fram komna brtt., og var til þess ætlazt, að n. fengi aðstöðu til þess fyrir þennan fund. En þar sem hún hefur ekki fengið tækifæri til þess og ósk hefur komið fram frá hv. frsm. meiri hl. n. um, að málinu verði frestað, þá verð ég við þeirri ósk og fresta umr. um þetta mál.