21.01.1952
Neðri deild: 65. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1143 í B-deild Alþingistíðinda. (1926)
96. mál, menntaskólar
Magnús Jónsson:
Herra forseti. Ég verð að biðja hv. deildarmenn afsökunar á því, að ég er kvefaður og því illa til ræðuflutnings fallinn.
Svo sem bent hefur verið á hér í þessum umr., hefur Ed. gert þær breytingar á frv., að það miðast nú við, að heimild verði veitt til þess, að miðskóladeild megi starfa við menntaskólana fram til ársins 1954. Ég vil aðeins, að það liggi ljóst fyrir, að ég get vel sætt mig við þessa afgreiðslu málsins, þar sem nú er komið að þingslitum og óvíst, ef farið verður að breyta málinu enn héðan af, að það nái fram að ganga. Ekki sízt get ég fellt mig við þessa afgreiðslu eftir að menntmrh. hefur lýst því yfir, að hann muni nota þessa heimild.
Hv. þm. A-Sk. var að tala um það, að réttast væri að vísa þessu máli frá, þar sem fyrir lægi till. til þál. um að láta endurskoða skólalöggjöfina. Það vill nú svo til, að ég á líka nokkurn þátt að því máli, en ég vil vekja athygli á því, að einmitt sú endurskoðun er rök fyrir því, að þetta frv. verði samþykkt, af því að þessi deild hefur verið við menntaskólann á Akureyri, og þó að svo hafi ekki verið formlega nú í vetur, þá hefur hún alltaf verið þar áður fyllilega formlega. Og þó að hún sé það ekki í vetur, þá er niðurstaðan samt sem áður sú, að þessi deild er þar starfandi, og það er í alla staði óeðlilegt að fara að breyta nú til, ef svo skyldi fara, að þessi endurskoðun skólalöggjafarinnar leiddi það í ljós, að hún ætti fyllsta rétt á sér. Ef það kæmi í ljós, er ekki rétt að vera að skera þessa deild af skólanum nú, þar sem hún yrði þá tekin upp aftur.
Ég vænti þess, að hv. deildarmenn ljái þessu máli lið sitt í því formi, sem það nú er í. Það varð til samkomulags við ýmsa andstæðinga málsins í Ed. að fallast á það í þessari mynd, og tel ég rétt, að það verði samþykkt í því formi, sem það nú er.