16.10.1951
Neðri deild: 13. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 59 í B-deild Alþingistíðinda. (193)
20. mál, hegningarlög
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Þetta litla frv. er flutt vegna þess, að frá því lýðveldi var hér stofnað hefur þess ekki verið gætt að breyta hegningarl. á þann hátt, að skýrt sé tekið fram, að forseti Íslands nyti sams konar réttarverndar sérstaklega eins og konungur naut áður, heldur hafa ákvæði varðandi konung haldizt óbreytt. Rétt þykir því að breyta l. í samræmi við núverandi ástand, og í því tilefni er frv. flutt. Það hefur þegar fengið meðhöndlun í hv. Ed. Ég legg til, að því verði vísað til 2. umr. og allshn.