22.11.1951
Neðri deild: 31. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1158 í B-deild Alþingistíðinda. (1953)

47. mál, öryggisráðstafanir á vinnustöðum

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. Ég vil vekja athygli á því, að brtt. 11–15 á þskj. 183. eru allar um orðin „og öryggisráð“ eingöngu. Væri ekki hægt að flýta fyrir atkvgr. með því að taka alla þessa liði sameiginlega við atkvgr.?