11.01.1952
Efri deild: 57. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1160 í B-deild Alþingistíðinda. (1965)

47. mál, öryggisráðstafanir á vinnustöðum

Forseti (BSt):

Ég get ekki — og hef sagt það áður — tekið neina ábyrgð á mig í því efni, að hæstv. ráðh. sé viðstaddur umr., en vitanlega gæti ég skilað þessu til hæstv. ráðh., ef tækifæri gefst, en auðvitað gæti hv. þm. sjálfur hringt til hæstv. ráðh. Þeir fá dagskrá eins og aðrir og vita, hvaða mál eru til umræðu.