25.10.1951
Neðri deild: 18. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 60 í B-deild Alþingistíðinda. (197)

20. mál, hegningarlög

Frsm. (Jónas Rafnar):

Herra forseti. Ég skal viðurkenna, að hugtakið „nánasta fjölskylda forsetans“ er nokkuð óákveðið, og það var að vísu ekki rætt í n., hvað það næði til margra. En ég held, að þetta nái til konu forsetans og til barna hans. Annars má um þetta deila og getur sýnzt sitt hverjum um þetta atriði.