19.01.1952
Neðri deild: 64. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1225 í B-deild Alþingistíðinda. (2070)
134. mál, girðingalög
Frsm. (Jón Sigurðsson):
Herra forseti. Það er rétt, að hv. síðasti ræðumaður minntist lauslega á þetta fyrir nokkrum dögum. Ég hélt, að hann hefði fallið frá þessu og ekki álitið það jafnalvarlegs eðlis og fram kom í ræðu hans áðan. Þar sem líður nú að þingslitum, mundi það sennilega þýða það, ef því væri frestað nú, að frv. þetta næði ekki fram að ganga nú á þessu þingi, og yrði þá að taka það upp að nýju á næsta þingi, en það væri mjög bagalegt, því að það hefur verið unnið mikið í þessu máli nú.
Mér þykir einnig erfitt að geta ekki orðið við tilmælum hv. þm., en vildi mælast til þess við hann, að hann kæmi með skriflega brtt. nú.