19.01.1952
Neðri deild: 64. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1226 í B-deild Alþingistíðinda. (2071)

134. mál, girðingalög

Gunnar Thoroddsen:

Herra forseti. Þar sem málið hefur nú gengið í gegnum Ed. og á eftir eina umr., fæ ég ekki séð, að afgreiðslu þess sé stefnt í neinn háska, þó að umr. sé frestað til mánudags, og mun ég þá hafa tilbúna brtt.