10.10.1951
Efri deild: 7. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 30 í B-deild Alþingistíðinda. (21)
39. mál, lántaka vegna landbúnaðarframkvæmda
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Ég sé ekki ástæðu til að fara að taka hér upp allar þær umr., sem urðu um þetta mál í öndverðu, en hv. 4. þm. Reykv. virðist stefna að því. Ég vil þó benda á í þessu sambandi, að þegar við tökum lán til virkjananna, verðum við að bíða nokkuð eftir því, að áhrifin komi fram í gjaldeyrisaukningu eða gjaldeyríssparnaði. Það þarf bæði tæki og framkvæmdir ýmiss konar til þess að hægt sé að notfæra sér raforkuna í heimahúsum og við iðnað, svo að ég held, að við þurfum ekki að bíða lengur eftir því, að hin góðu áhrif lántökunnar til landbúnaðarins komi fram, en eftir áhrifum lántökunnar til virkjananna. Þetta sýnir, að það skortir ekki rök fyrir þessari lántöku til landbúnaðarins. — Á þetta vildi ég aðeins drepa vegna ræðu hv. 4. þm. Reykv.