11.01.1952
Neðri deild: 56. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1232 í B-deild Alþingistíðinda. (2125)

162. mál, gjald af kvikmyndasýningum

Flm. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Frv. þetta felur í sér heimild til handa sveitarstjórnum, þ.e. bæjarstjórnum og hreppsnefndum, til þess að leggja sérstakt gjald á kvikmyndasýningar, er renni í sveitarsjóði. — Vil ég um þetta mál vísa til grg., sem því fylgir, og tel því ekki ástæðu til að fara frekar út í það, en legg til, að málinu verði vísað til 2. umr. og allshn.