06.12.1951
Efri deild: 38. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1314 í B-deild Alþingistíðinda. (2203)

109. mál, skipun prestakalla

Forseti (BSt):

Út af ummælum hv. þm. Barð. um meðferð á brtt. vil ég taka það fram, að ég sé ekki, að ómögulegt sé að hafa þann hátt á, þótt hann taki aftur til 3. umr. brtt., sem hann vill láta samþ. sem aðalbrtt., að hann beri fram aðrar till. til vara við 3. umr. Hans brtt., sem nú liggja fyrir, mundu þá vera bornar upp fyrst og hinar svo á eftir, ef aðaltill. væru felldar.