07.12.1951
Efri deild: 39. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1328 í B-deild Alþingistíðinda. (2215)

109. mál, skipun prestakalla

Gísli Jónsson:

Ég vil gera fyrirspurn til hæstv. forseta um það, hvort þessi brtt. sé ekki of seint fram komin, þar sem ég leit svo á, að umr. væri lokið. Ég lít því svo á, að þessi till. geti ekki komið fram við 2. umr., heldur verði hún að bíða 3. umr.