10.12.1951
Neðri deild: 39. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 4 í C-deild Alþingistíðinda. (2338)

12. mál, sala og útflutningur á vörum

Frsm. minni hl. (Einar Olgeirsson):

Herra forseti. Ég vil aðeins vekja athygli á því, að hv. meiri hl. hefur hvorki í ár né í fyrra getað skapað sér neitt álit á þessu máli, hefur hann hvorki getað tekið afstöðu með því né á móti. Þess vegna er ekki hugsandi, að það komi nál., þegar ekkert álit hefur skapazt um málið.