27.11.1951
Efri deild: 35. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 26 í C-deild Alþingistíðinda. (2368)

118. mál, eftirlit með opinberum sjóðum

Forseti (BSt):

Mér hefur borizt skrifleg brtt. frá allshn. við a-lið brtt. á þskj. 265: „Við a-lið brtt. bætist ný málsgr., svo hljóðandi: Gæta skal þess, þegar breyting er heimiluð á skipulagsskrá, að farið sé svo nærri óskum sjóðsstofnanda sem hinar breyttu aðstæður leyfa.“

Brtt. þessi er skrifleg og of seint fram komin og þarf því tvöföld afbrigði.