10.12.1951
Efri deild: 40. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 33 í C-deild Alþingistíðinda. (2392)

66. mál, byggingu nokkurra raforkuveitna

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Ég vildi gjarnan sem form. n. láta það koma fram, að það er skoðun n., að þetta eigi að framkvæma eins fljótt og hægt er, en það er bundið því skilyrði, að það fjármagn fáist, sem hæstv. ráðh. hefur upplýst að þurfi.

Ég skal einnig geta þess, að iðnn. lítur svo á, að loforðið sé bindandi, þó að annar ráðh. taki við. — Þetta þótti mér rétt að taka fram.