27.11.1951
Neðri deild: 34. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 64 í C-deild Alþingistíðinda. (2423)

107. mál, fasteignamat frá 1942 o. fl.

Pétur Ottesen:

Ég vildi, af því að hér er um allþýðingarmikið mál að ræða, mælast til þess við hæstv. forseta, að hann slíti ekki umr. nú um þetta mál, því að það er, eins og hv. þm. A-Húnv. sagði í ræðu sinni, harla tilgangslítið að vera að ræða þetta mál hér yfir 5 þm., 2 skrifurum og 2 pallagestum. Ég hefði þess vegna viljað fara fram á það við hæstv. forseta, að hann slíti ekki umr. um þetta mál nú, svo að það gæfist tækifæri til þess að ræða það í áheyrn hv. þm. og annarra, sem vilja á þær umr. hlýða og hafa til þess ástæður. Ég hef ekki heldur fengið svar við spurningum þeim, sem ég beindi til hæstv. fjmrh.