27.11.1951
Neðri deild: 34. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 65 í C-deild Alþingistíðinda. (2427)

107. mál, fasteignamat frá 1942 o. fl.

Frsm. (Skúli Guðmundsson):

Ég sé enga ástæðu til að fresta umr. um þetta mál nú, og ég mótmæli því, að það sé gert, því að jafnvel þó að tveir eða þrír menn séu á mælendaskrá, þá er þeim í lófa lagið að halda sínar ræður síðar. Og það er búið að taka þetta mál fyrir á mörgum fundum.