06.11.1951
Neðri deild: 23. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 76 í B-deild Alþingistíðinda. (263)
2. mál, gengisskráning, launabreytingar, stóreignarskattur, framleiðslugj. o. fl.
Gylfi Þ. Gíslason:
Herra forseti. Það er ekki samboðið hæstv. atvmrh. að halda áfram að snúa út úr og segja, að ég hafi fagnað till. Ég fagnaði ekki till. í sjálfu sér, heldur því, að hún hefði sýnt inn fyrir dyrnar hjá Sjálfstfl. og að sá klofningur, sem er í Sjálfstfl., hefði komið fram.