12.11.1951
Neðri deild: 26. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 342 í C-deild Alþingistíðinda. (2937)
62. mál, ítök
Frsm. (Ásgeir Bjarnason):
Herra forseti. Það frv., sem hér er til umr., hefur tvisvar áður verið lagt fyrir hæstv. Alþ. og þess vegna orðið mjög tíðrætt um það hér. Á síðasta þingi var frv. vísað frá með rökst. dagskrá og þess óskað, að búnaðarþing segði álit sitt um það. Þingið kom saman í febr. s. l. vetur. Tók það málið upp og var einhuga því fylgjandi, en vildi þó benda á eitt í frv., þ. e., ef ítakið væri þannig, að báðir hlutaðeigendur hefðu jafnmikil not af því, skyldi það fylgja báðum jörðunum, eftir því sem matsmenn legðu til. Þetta ákvæði hefur nú verið fellt inn í 2. málsgr. 5. gr. frv., og var það gert í hv. Ed. Í þessari hv. d. lá fyrir ein brtt. frá hv. þm. A-Sk., og tók n. þessa till. einnig til athugunar og leggur til, að hún verði samþ. Tekur hún greinilega fram, hvernig haga eigi málsmeðferð, þegar vafi getur verið á því, hvort um ítak er að ræða eða ekki. — Annars mun hv. þm. A-Sk. gera frekari grein fyrir þessu. En n. hefur verið sammála um að leggja til, að frv., eins og það er komið frá hv. Ed. og ásamt brtt. hv. þm. A-Sk., verði samþykkt.